Taubleyja | Kekoa Premium Heavy Wetter | COVE (SEAFOAM WINGS)
- Fá eintök eftir
Hentar vel með
Vönduðu taubleyjurnar frá Kekoa henta flestum börnum frá fæðingu og út bleyjutímabilið eða frá 3,0 - 19 kg. Kekoa Premium Heavy wetter bleyjurnar hafa auka rakadrægni saumað inn í skelina (undir CoolMax® wicking jersey efninu). Einstaklega vel hönnuð bleyja sem nýtist bæði sem vasableyja og/eða AI2, hún er með mjúka og teygjanlega vængi í mittinu. Vængirnir teygjast í fjórar áttir sem bæði auðveldar hreyfingu barnsins sem og ummönnunaraðila í að stilla hana.
Tvö nett en mjög svo rakadræg innlegg fylgja bleyjunni með smellum, svo innleggin haldast á sínum stað í bleyjunni. Bæði innleggin eru úr bambus terrry og er annað þeirra er kallað trifold/bifold. Þegar bleyjan er í minnstu stillingu þá er mælt með að brjóta trifoldið í þrennt, þegar barnið stækkar og bleyjan með þá er það innlegg brotið saman í tvennt (sjá nánar á mynd). Innralag bleyjunnar er úr CoolMax® wicking jersey efni, sem gerir það að verkum að ef innleggin eru sett í vasann þá finnur barnið ekki fyrir bleytunni. Einnig getur CoolMax® wicking jersey efnið hentað vel börnum með viðkvæma húð þar sem það andar vel og hrindir vökva frá húð barnsins. Ákveðnir eiginleikar bleyjunnar koma aukalega í veg fyrir leka eins og auka rakadrægnin sem er saumuð inn í skelina, extra breiðu teygjunar við bakið og lærin sem og pul efnið að framan og aftan.
Vasinn sjálfur er klæddur auka rakadrægni til að koma í veg fyrir leka og hentar því einstaklega vel börnum sem pissa mikið í einu eða sem næturbleyju. Að auki er hægt að opna vasann bæði að framan sem og að aftan. Þó svo að bleyjan sé nett, þá er hún extra lipur í hönnun sem gerir öllum kleift að setja innleggin í vasann, jafnvel mjög stórum höndum.
Kekoa bleyjurnar eru ekki bara vel hannaðar þar sem er hugsað fyrir öllu. Heldur eru þær einnig umhversvænar í bæði notkun og framleiðslu, þar sem þær eru búnar til á sjálfbæran hátt úr endurunnu plasti.
Ytra efni er úr PUL, gert úr 100% endurunnum plastflöskum, sem hjálpar til við að draga úr framleiðsluorku um 75% og vatnsnotkun um 90% (samanborið við pólýesterefni). Hver bleyja sparar um það bil sex plastflöskur úr sjónum okkar og urðun.
Við mælum með að nota taubleyjur samhliða því að lesa í þarfatjáningu ungbarna (EC), ekki bara af því að það er umhverfisvænna og ódýrara. Heldur vegna þess að með taubleyjum er hægt að láta barnið finna fyrir vætunni sem einnota bleyjur gera ekki. Afhverju viljum við það? því þá tengir barnið bleytuna í bleyjunni við þarfir sínar. Lesið nánar í bókinni Go diaper free sem fæst hér.
Ungbarnakoppurinn okkar er umhverfisvænn valkostur með eða án notkunar taubleyja. Með því að lesa í þarfatjáningu ungbarna og nota kopp þá þarftu færri bleyjur = minni 🧺 og betra fyrir 🌍 og 💰.
Sjá nánar um bleyjuna hér fyrir neðan.
- Oeko-Tex Standard 100
- Umhverfisvænt