Skilmálar

Upplýsingar um seljanda

Montessori.is starfar undir fyrirtækinu Kolbítur ehf. Kt. 550102-3660. Vsk. númer: 73461. Borgarholtsbraut 67, 200 Kópavogur, sími 770-1493. Montessori.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar innan þriggja virkra daga eftir að pöntun sé greidd nema annað sé sérstaklega tekið fram. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður montessori.is hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar.
Sjá skilmála inn á dropp.is.
Montessori.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Montessori.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

 

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% eða 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Ef valið er "Vistvæn heimsending á Höfuðborgarsvæðinu" þá eru pantanirnar sendar af montessori.is á 100% rafmagni. Allar aðrar sendingar eru afhentar af Dropp eða Flytjanda.

Verðskrá sendinga:

Vistvæn heimsending á höfuðborgarsvæðinu 890 kr.
Dropp afhendingarstaðir  990 - 2980 kr.
Heimsending fyrir suðvesturhornið 1450 kr.
Heimsending utan höfuðborgarsvæðisins á stórri vöru t.d. Klappturninum er á 2980 kr. 

 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

  

Trúnaður (öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

 

Lög og varnarþing

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

 

Öryggi

Vinsamlegast athugið! Vörunar okkar eru kennsluleikföng, CE vottuð fyrir 36 mánaða og eldri og eru ekki ætluð börnum án eftirlits. 

 

 

Mastercard LogoVisa Logo