Æðislegur lítill blautpoki sem er hannaður til að passa undir blautþurrkurnar, eina taubleyju eða jafnvel sundbleyju. Lítill en ó svo nytsamlegur hlutur sem nýtist á ýmsan hátt, t.d. undir fyrirfram bleyttar blautþurrkur, til að geyma hrein snuð eða nagleikföng á ferðinni, undir fjölnota brjóstainnlegg svo eitthvað sé nefnt. Handfangið á hliðinni er með smellu svo auðvelt er að láta pokann hanga utaná skiptitöskunni/sundtöskunni.
Frábær umhverfisvænn kostur úr endurunnu efni sem kemur í stað plastpoka. ♻️
Stærð: 21cm x 15cm