Skemmtilegur segulleikur með 5 sexhyrndum púslum þar sem barnið parar saman form og liti á einfaldan og sjónrænan hátt.
Hvert púsl er með rauðum miðjubút í einu af fimm formum: ferningi, þríhyrningi, rétthyrningi, sporöskjulaga formi eða hring. Í kringum miðjuna raðast síðan sex samsvarandi púslbútar sem klára myndina.
Leikurinn var þróaður í samstarfi við kennara og styður við formaskilning, rökhugsun, einbeitingu og fínhreyfingar í gegnum leik.
Hentar börnum frá 3 ára aldri.