
Myndgeymdar kassinn
- Til á lager
Myndgeymdar kassinn (Object permanence box) er notaður til að læra að hlutir sem hverfa úr augsýn eru enn til.
Þroskaðu einbeitingu og skilning barnsins þíns á því að hlutir halda áfram að vera til þó að það sjái þá ekki lengur – alveg eins og í “gjugg-í-borg” (e. peek-a-boo) leiknum!
Um leið og barnið þitt getur setið óstutt getur þú kynnt fyrir því fyrsta feluleikinn. Barnið þitt mun njóta þess að láta boltana falla í gegnum holuna og sjá þá birtast aftur í gegnum hurðina, aftur og aftur.
Með því að endurtaka þessa hreyfingu mun barnið læra að þó að boltinn hverfi er hann enn til og mun að öllum líkindum birtast aftur, þetta kallast myndgeymd. Þessi færni er sérstaklega mikilvæg til þess að barnið læri að þú munir alltaf koma aftur, jafnvel þó að þú hafir einnig horfið því sjónum.
Fullkomin stærð boltanna mun einnig þjálfa tangargrip barnsins og verðlauna barnið hvert skipti sem að boltinn kemur til baka. Þessi verðlaunun mun hvetja barnið til að endurtaka æfinguna, sem þjálfar einbeitinguna.
![]() |
![]() |