Skapandi verkfæri fyrir litlar hendur!
Ertu að leita að skemmtilegri leið til að auka möguleikana í leik með leikleir?
Leiráhöldin hjálpa börnum að klippa, móta, rúlla og kanna leikleirinn á fjölbreyttan hátt. Leiráhöldin eru hönnuð fyrir litlar hendur og gera börnum kleift að prófa sig áfram sjálf í öruggum og skapandi leik.
Montessori aðferðin leggur áherslu á að börn læri í gegnum hendur sínar. Með leiráhöldunum fá börnin tækifæri til að styrkja fínhreyfingar, handstyrk, samhæfingu og sjálfstæði á meðan þau skapa og móta eftir eigin hug.
Settið inniheldur 5 leiráhöld sem henta vel með Náttúrulega leikleirnum. Frábært fyrir skapandi stundir heima eða í leikskólanum.