Þetta tré er frábær efniviður sem hægt er að nýta til að þjálfa fínhreyfingarnar. Fínhreyfingar eru þær hreyfingar sem nota smáu vöðvana í höndunum og úlnliðnum. Þær munu koma til með að hjálpa barninu þínu í að byggja upp styrk og vöðvaminni sem undirbýr það undir notkun blýanta til að skrifa.
Við viljum að allar vörurnar okkar nýtist á sem flesta vegu, því er jólatréið einnig talningarborð. Jólatréið hefur 10 holur sem má nota til að þekkja tölur og talnasambönd t.d. 3 + 7 = 10.
Tréið er handsmíðað og skorið úr gegnheilu beyki, lakkað með náttúrulegri hrárri olíu.