Íslensku stafrófsspjöldin eru tilvalin til að auka skilning á stöfunum. Spjöldin koma með hástöfum að framan og lástöfum að aftan. Spjöldin eru hönnuð til að vera skýr og auðlesanleg og passa þau fullkomlega með með sandskriftarbakkanum.
Stafrófspjöldin eru prentuð á vistvænan A6 endurunnin pappír og fylgir lífrænn bómullar poki með til að halda utanum spjöldin.
Við höfum notað þessi stafaspjöld mjög mikið. Með sandskriftarbakkanum og ein og sér. Það er frábært og eykur notagildi þeirra að hafa stóra stafi öðru megin og litla hinum megin.