Náttúrulega gert fyrir litlar hendur!
Ertu að leita að fallegu og fjölbreyttu leikleirssetti sem býður upp á endalausan skapandi leik?
Leikleirssettið er gert úr náttúrulegum hráefnum og hefur silkimjúka áferð sem auðvelt er fyrir lítil börn að móta. Leikleirinn er laus við óþarfa efni og rotvarnarefni og hentar vel fyrir börn sem elska að skapa, kreista, rúlla og móta.
Montessori aðferðin leggur áherslu á að börn læri í gegnum hendur sínar. Með þessu gjafasetti fá börnin tækifæri til að styrkja fínhreyfingar, handstyrk og ímyndunarafl í frjálsum og sjálfstæðum leik.
Settið inniheldur 4 pakkningar af leikleir, 125 g hver, 6 leirmót, 6 leirstimplar, eitt kökukefli. Fullkomið sett fyrir skapandi stundir heima eða í leikskólanum.