Næsta skref í sjálfstæði
Ég get sjálf/ur! Þjálfunarnærbuxurnar eru hannaðar til að hjálpa barninu þínu að taka næsta skrefið frá bleyju yfir á klósettið með öryggi og þægindi að fyrirrúmi. Þær eru úr lífrænum GOTS vottuðum bómul, umhverfisvænar og halda einu slysi sem gefur barninu tækifæri til að læra á þægilegan hátt og eflir sjálfstraust og sjálfstæði í koppþjálfuninni.
Af hverju að velja þjálfunarnærbuxurnar?
-
Þægilegar: Buxurnar eru úr mjúku og teygjanlegu efni sem er lífrænt og GOTS vottað og veita þær barninu fullt frelsi til að hreyfa sig.
-
Endurnýtanlegar og umhverfisvænar: Má þvo og nota aftur og aftur, sem dregur úr sóun og er betra fyrir umhverfið.
-
Rakadrægar: Hannaðar með rakadrægu lagi til að takast á við lítil slys.
-
Sparnaður: Endurnýtanleg hönnun sem sparar peninginn sem færi annars í einnota bleyjur.
-
Falleg hönnun: Kemur í ýmsum litum, með skemmtilegum myndum og bjóðum við upp á þjálfunarsetur, kolla og ferðakoppa í stíl sem hvetja börnin áfram.
Upplýsingar
-
Stærðir:18-24 mánaða, 2-3 ára, 3-4 ára
-
Pakkningar: Koma þrjár þjálfunarnærbuxur saman í pakka