Klifurþríhyrningurinn með veggfestingu býður upp á þrjá mismunandi notkunarmöguleika sem umbreyta heimilinu í skemmtilegan leikvöll og skapa einnig frábæra námsaðstöðu (skrifborð og stóll selt sér). Þessi fjölhæfa vara hentar börnum frá sex mánaða aldri og er sannarlega gagnleg langt fram eftir aldri. Klifurþríhyrningurinn og rimlaveggurinn hvetur til hugrekkis og hreyfingar, æfir jafnvægið, hjálpar til við að styrkja vöðvana og þjálfa grófhreyfingarnar eftir getu barns hverju sinni.
Hér eru dæmi um hvernig hægt er að nýta klifurþríhyrninginn eftir aldri:
Einnig er hægt að kaupa aukalega rennibraut sem passar á Klifurþríhyrninginn. Rennibrautin er stillanleg og hægt er að breyta hæð hennar eftir aldri og getu barnsins. Klifursteinar úr viði eru staðsettir undir rennibrautinni sem býður upp á ólíkar leiðir til að klifra.
Grunnhugmyndin að baki klifurþríhyrningsins er sótt til kenninga Dr. Emmi Pikler, ungversks barnalæknis sem rannsakaði bæði tilfinningalega og líkamlega þroska barna, og lagði áherslu á að veita börnum tækifæri til að þroska hreyfifærni sína á náttúrulegan hátt.
Leggðu teppi yfir Klifurþríhyrninginn og búðu til tjald fyrir notalegar sögustundir með vassaljósi |
Klifurþríhyrningur:
• Hæð– 68 cm
• Lengd – 87 cm
• Breidd – 78 cm
Klifurþríhyrningurinn er búinn til úr náttúrulegum FSC vottuðum, finnskum birkikrossviði og fást ýmsir aukahlutir hjá okkur sem nýtast þessari gerð af klifurþríhyrningi. Til dæmis rennibraut, skipulagsvasa, skrifborð og stól. Þessir aukahlutir eru sérhannaðir til notkunar með Klifurþríhyrningnum sem hægt er að að hengja upp á vegg. Þessar vörur auka notkunarmöguleika leikfangsins og eru auðveldar í notkun.
Klifurþríhyrningur með veggfestingu