Samstæðuspil með 14 mismunandi ávextum og grænmeti til að para saman. 
Spilin eru gerð úr þykkum við sem auðvelda börnum grip. 
Þetta spilasett hefur marga möguleika:
- Para saman samstæður.
 Myndirnar snúa upp og parað er svo saman réttar myndir.
- Minnisleikur.
 Myndirnar snúa niður og leitað er eftir réttri samstæðu.
- Flokka í hópa.
 Flokka eftir , ávöxtum, grænmeti, bragði t.d. súrt/sætt, áferð, stærð. Vex á tré eða í jörðu?
Hentar frá 12 mánaða aldri.