Barnarúmin okkar eru sérhönnuð með Montessori kennslufræðina í huga, svo börnin geti nýtt sér eigið sjálfstæði yfir háttatímann. Fjölskyldukojan hentar einstaklega vel systkinum á mismunandi aldri. Neðra rúmið er lágt og er með öruggum hliðum sem auðvelda litlum krílum að klifra sjálf upp í og úr, án þess að þurfa aðstoð.
Neðri hlutinn er sjálfstætt gólfrúm sem hægt er að nota eitt og sér, sem veitir mikinn sveigjanleika. Þar sem neðra rúmið er 120 cm breitt myndast fullkomið rými fyrir gæðastundir, þar sem foreldri og barn geta auðveldlega kúrt saman við sögulestur.
Kojan sjálf er alls ekki há eins og þær eiga oft til að vera, sem gerir hana mun öruggari en flestar aðrar kojur á markaðnum. Viðurinn er náttúrulegur og endingargóður, sem skapar mjúkt og hlýlegt umhverfi í barnaherberginu.
Dýnustærð: 120x200 niðri og 90x200 uppi og er mælt með að hámarks þykkt dýnu sé 13 cm. Dýnur fylgja ekki með.
Stærð rúmgrindar: L208 x B126 x H130
Hámarks burðargeta neðri koju: 100 kg fyrir hvorn helming rúmbotns.
Hámarks burðargeta efri koju: 100 kg.
Efniviður: Rúmgrindin er hönnuð og framleidd í Evrópu úr FSC vottaðri furu frá Póllandi.
Umhirða: Þrífið eftir þörfum með rökum klút og þurrkið með þurrum klút beint á eftir.
Innifalið í kaupunum: Koju rúmgrind, stigi, festingarbúnaður og leiðbeiningar.
Ath dýnur fylgja ekki með!
![]()