Búðu til þinn eiginn risaeðluheim! 🦕🌎🦖
Í risaeðluföndursettinu okkar finnur þú safn af viðarhlutum, hver og einn fallega hannaður til að kveikja sköpunargleðina, pinna og stand svo hægt sé að koma þeim fallega fyrir í hillu.
Frá hinum volduga T-Rex til hins ljúfa þríhyrningshöfða, flugeðlunnar og langhálsins er þetta risaeðluföndursett frábær uppskrift að æðislegri leikstund! 🫶✨
Pakkinn inniheldur einnig vatnslitablýanta, málningarpensil og yddara.
🎨Til að fá litinn dýpri og bjartari dýfðu þá blýantnum ofaní vatn.
🖌️Til að fá vatnslitaáferð, notaðu blautan pensilinn til að blanda litnum.
Ath! Þessi vara inniheldur smáa parta.
Ekki ætlað börnum yngri en 36 mánaða.