Skapandi sandáhöld fyrir litlar hendur!
Ertu að leita að áhöldum sem gera leik með töfrasand, sand og mold enn skemmtilegri?
Þetta þriggja hluta sett er fullkomið fyrir unga sköpunarkrafta sem vilja moka, raka, móta og kanna ólíkan efnivið. Áhöldin henta sérstaklega vel með töfrasandi, sandi og í skynjunarleiki.
Áhöldin eru gerð úr endingargóðu og umhverfisvænu efni sem unnið er úr endurunnum ólífusteinum. Þau eru létt, þægileg í gripi og sérstaklega hönnuð fyrir litlar hendur.
Montessori aðferðin leggur áherslu á að börn læri í gegnum hendur sínar. Með áhöldunum fá börnin tækifæri til að styrkja fínhreyfingar, handstyrk, samhæfingu og ímyndunarafl í frjálsum og skapandi leik.
Frábær viðbót við leik heima, í leikskólanum eða skólanum, hvort sem er í skynjunarleik, föndri eða skemmtilegum sandævintýrum.