Kinderly Removable Magnetic Wallpaper

Segulveggur

Leiðbeiningar

Hér finnur þú allt sem þú þarft að vita áður en þú setur upp segulvegginn frá Kinderly.

Prófaðu vegginn þinn með

Límbandsprófinu

Við mælum með að gera einfalt próf með límbandi áður en segulveggurinn er settur upp. Ef límbandið helst vel á veggnum eftir 24 klukkustundir þá hentar veggurinn fyrir segulveginn.

Segulveggurinn hentar ekki fyrir:

Krítarkennda veggi: Ef veggurinn losar frá sér duft við snertingu nær límið ekki nægilega góðu gripi og segulveggurinn festist mögulega ekki.

Málningartegundir: Slitsterk eða þvottheld málning, svo sem glansandi eða háglansandi áferð, hentar almennt ekki með neins konar lími og getur komið í veg fyrir að segulveggurinn festist almennilega.

Óhreina veggi: Þrífið svæðið með rökum klút til að fjarlægja ryk og óhreinindi. Forðist sterk hreinsiefni þar sem þau geta skemmt límið.

Blauta veggi: Gakktu úr skugga um að svæðið sé alveg þurrt og hreint áður en segulveggurinn er settur upp.

Nýmálaða veggi: Málning þarf að harðna að fullu. Við mælum með að bíða í 30–60 daga, eftir því hvaða tegund málningar var notuð, áður en segulveggurinn er settur upp.

Mjög hrjúfa veggi og veggfóður: Ójafnt yfirborð gerir segulveggnum erfitt fyrir að festast vel. Við mælum heldur ekki með að setja hann á veggfóðraða veggi, þar sem hann festist mögulega ekki við allar gerðir veggfóðurs.

Gamla eða sprungna málningu: Ef segulveggurinn er settur á skemmt yfirborð getur það valdið frekari skemmdum. Þrýstingurinn frá segulveggnum getur valdið því að málning flagni eða brotni af.

Uppsetning

Hvernig á að setja upp

Taktu segulvegginn úr hólknum og láttu hann liggja flatan í nokkrar klukkustundir svo hann sléttist náttúrulega.

Hreinsaðu og þurrkaðu vegginn. Fjarlægðu síðan varnarfilmuna áður en þú setur hann á vegginn.

Notaðu meðfylgjandi sköfu til að slétta úr loftbólum og tryggja fasta, jafna áferð.

Er hægt að færa vegginn?

Já, hægt er að færa vegginn um stað allta að 3 sinnum. Til að viðhalda góðri viðloðun skal ávallt tryggja að bæði veggflöturinn og límhliðin séu hrein og þurr.

Færanlegur

Segulveggurinn er færanlegur, en við mælum með að hann sé fjarlægður og settur upp aftur að hámarki þrisvar sinnum, hann er ekki hannaður fyrir tíða fjarlægingu.

Haltu bæði veggnum og límhliðinni hreinum og þurrum til að viðhalda góðri festu.

Umhirða

Á segulvegginn má skrifa með tússtöflupennum, krít eða vatnsleysanlegri málningu sem auðvelt er að þurrka af með rökum klút.

Til að þrífa segulvegginn mælum við með mjúkum, rökum klút. Fyrir erfiða bletti má nota milda hreinsilausn, til dæmis örlítið af uppþvottalegi blandað í vatn. Þurrkaðu svæðið síðan með hreinu vatni og láttu það þorna alveg.

Notaðu ekki sterk hreinsiefni á segulvegginn. Hreinsaðu skrif af sem fyrst, þar sem þau geta orðið erfiðari að fjarlægja eftir langan tíma.

Fyrirvari: Skemmdir geta átt sér stað við uppsetningu eða fjarlægingu, Kinderly og montessori.is bera ekki ábyrgð á skemmdum.