Náttúrulegur leikleir fyrir börn, handgerður úr lífrænum hráefnum.
Frábær leir sem nýtist í skynjunarleiki eða jafnvel með lærdómi sem m.a. hvetur ímyndunaraflið og styrkir fínhreyfingarnar.
Leirsettið er handgert úr lífrænum matvælahráefnum af móðir tveggja dætra. Settið inniheldur 8 mismunandi liti sem eru innblásnir af náttúrunni og er hver litur pakkaður inn í loftþéttar fjölnota dollur án plasts. Leirinn er náttúrulegur og brotnar niður í náttúrunni og eru umbúðirnar endurvinnanlegar.
Litir innblásnir af náttúrunni:
Steingrár
Mosagrænn
Moldarbrúnn
Berjarauður
Hunangsgulur
Hafblár
Blómableikur
Sandbrúnn
Inniheldur: hveiti, salt, vatn, grænmetisolía, vanilla, matarlitur og cream of tartar.
Leirinn er svo mjúkur og litirnir svo fallegir. Einnig eru öskjurnar undir leirinn þæginlegar svo auðvelt er að geyma hann og halda litunum aðskildum. Leirinn geymist vel.