Frábær leir sem nýtist í skynjunarleiki eða jafnvel með lærdómi sem m.a. hvetur ímyndunaraflið og styrkir fínhreyfingarnar.
Leirsettið er handgert úr lífrænum matvælahráefnum af móðir tveggja dætra. Settið inniheldur 8 mismunandi liti sem eru innblásnir af náttúrunni og er hver litur pakkaður inn í loftþéttar fjölnota dollur án plasts. Leirinn er náttúrulegur og brotnar niður í náttúrunni og eru umbúðirnar endurvinnanlegar.
Litir innblásnir af náttúrunni:
Inniheldur: hveiti, salt, vatn, grænmetisolía, vanilla, matarlitur og cream of tartar.
Heildar þyngd: 600 g
Hver dolla inniheldur: 75 g
Handgert
|
2+ ára |
Leirinn er svo mjúkur og litirnir svo fallegir. Einnig eru öskjurnar undir leirinn þæginlegar svo auðvelt er að geyma hann og halda litunum aðskildum. Leirinn geymist vel.